

Eylure Fluttery Light #008
990 kr
Eylure er fyrsta augnhára vörumerki í heiminum, og einnig það vinsælasta. Hjá Eylure má finna gervi augnhár sem henta öllum, hvort sem þau eru mjög náttúruleg eða dramatísk – eitthvað fyrir alla! Augnhárin í Fluttery Light flokknum eru létt, en gefa fallega lengd og áferð og henta þeim sem vilja ekki of mikla fyllingu í augnhárin. Augnhár #008 eru með bandi í ¾ lengd, og því er auðveldara að setja þau á sig en augnhár með lengra bandi. Þau eru lengri út í endana og opna því augun og gefa fallega lengd. Augnhárin eru handgerð, og hægt að nota allt að 5 sinnum. Með í pakkanum fylgir latex frítt augnháralím.