Marc Inbane Kabuki Brush
4.990 kr
Kabuki burstinn frá MARC INBANE er förðunarbursti sem er hannaður af förðunarfræðingum sem eru leiðandi á sínu sviði. Burstinn er rúnnaður og með flötum toppi. Notaðu burstann til að blanda brúnkuspreyinu á svæði sem gleymdust eða til að forðast skil, en með honum færðu þétta og fallega áferð.
Kabuki er einnig tilvalinn sem farðabursti, hvort sem er fyrir púður eða kremaðan fara.
Hárin á burstanum hafa verið meðhöndluð þannig að þau eru ekki ofnæmisvaldandi, án allra eiturefna og hafa fengið sérstaka bakteríudrepandi meðferð. Burstinn hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu. Þessi hágæða bursti er skyldueign fyrir alla sem er umhugað um förðun og fegurð.