Powder Brush

Powder Brush

2.490 kr 20%

Aðeins 2 stykki eftir

Bursti sem er hannaður til að nota í púður: púðurfarða til að fullkomna áferð, kinnaliti, sólarpúður og púður til skyggingar. Hann mýkir áferð húðarinnar svo hún virðist silkimjúk þó svo hún sé í sterkri birtu. Burstinn er einstaklega mjúkur og heldur lögun sinni þrátt fyrir mikla þvotta. Handfangið er úr léttu möttu áli svo það er þæginlegt að nota burstann og hann hreyfist lítið til á meðan þið eruð að nota hann. Burstinn getur staðið sjálfur – flottur inná baðherbergi eða á snyrtiborði. Real Techniques burstarnir eru meðal mest seldu förðunarbursta í heimi. Burstahárin eru sérstaklega mjúk og mun mýkri en margir aðrir förðunarburstar sem eru til á markaðnum í dag. Hárin eru 100% Cruelty Free. Mýktin á hárunum gefa þessa fullkomnu áferð á makeup-ið þitt sem allir sækjast eftir. Burstarnir eru flokkaðir eftir litum: Appelsínugulu eru fyrir undirstöðuna. Fjólubláu eru fyrir augun. Bleiku fullkomnu áferðina á húðinnni þinni. Hárin á hverjum og einum bursta eru snyrt í höndunum svo það sé hægt að tryggja gæði þeirra.