



Winter Skin
Winter Skin er gradual tan og nærandi líkamskrem sem gefur húðinni mjúkan og fallegan ljóma.
Ef þú ert ný í sjálfbrúnku og vilt einfaldan og öruggan kost, þá er þetta fullkomna varan. Hún er 2 in 1 rakagefandi líkamskrem og gradual tan sem byggir upp náttúrulegan, sólkysstan lit. Þú stjórnar dýpt litarins með því að bera kremið á nokkra daga í röð.
Formúlan inniheldur aðeins vottuð lífræn og náttúruleg innihaldsefni úr náttúrunni.
Þetta er einföld og áreynslulaus leið að fallegum, gylltum ljóma allt árið um kring. Sérstaklega góð fyrir ljósan húðlit, hún byggir upp mjúkan og náttúrulegan „honey glow“.
Helstu innihaldsefni:
Aloe vera sem veitir húðinni djúpan raka. Hún er rík af andoxunarefnum og vítamínum eins og A, C og E.
Náttúrulegt E-vítamín er fullt af andoxunarefnum sem styðja við húðina, hjálpa til við að draga úr merkjum öldrunar og gefa henni heilbrigðan ljóma.
Rose Geranium gefur ferskan og fallegan ilm, ásamt því að hjálpa til við að jafna og bæta ásýnd húðarinnar.