


Hempitan Body Tan Water 140ml
6.490 kr
Ef þú hefur ekki prófað þetta ennþá þá er þetta algjör game changer. Hún þornar strax svo þú getur borið hana á og haldið áfram með daginn. Liturinn byrjar að þróast á aðeins einni klukkustund, en við mælum með að láta hana vera á þar til þú ferð í næstu sturtu. Þú finnur varla fyrir henni á húðinni og hún inniheldur engin óæskileg innihaldsefni.
Þú stjórnar dýpt litarins sjálf, frá mjúkum gylltum ljóma yfir í djúpan bronslit.
Þetta er dekksta instant tan varan í línunni, en er samt unnin eingöngu úr lífrænum og náttúrulegum innihaldsefnum. Með lífrænu hampfræjaþykkni sem gefur raka, jafnar húðina og nærir hana á meðan liturinn þróast. Kakó bætir við andoxunarefnum og næringu sem húðin nýtur góðs af.